|
|
...Ekki reyna að mótmæla eftirfarandi:
sunnudagur, janúar 15, 2006
Djöfulsins glataða kjaftæði! Ég fékk SMS í gær sem í stóð: "Megadjamm á Gauknum i kvöld! FRITT INN og Dj. Frigore. XXX dansandi uppá poolbordum alla nottina!"
Hvolpurinn ég stökk náttúrulega til og smalaði Begga, Bjössa, Danna, Rúnari og einhverjum fleirum saman til þess að fara á gaukinn, fékk mér eina kippu og svo fórum við þangað. Það var ekkert XXX dansandi uppá poolborðum. Þetta var í rauninni bara glatað djamm. Lítið af fólki og það fólk sem var þarna var ljótt og leiðinlegt. Ég hata Gaukinn fyrir að hafa narrað mig svona. Það bjargaði kvöldinu hinsvegar að ég gersamlega rústaði Begga bæði í pool og fooshball en engu að síður fór ég heim klukkan 3 og stoppaði á Pizza Pronto í leiðinni. Það var allt að kaffærast í snjá á leiðinni heim og tussukalt.
Djöfulsins glataða djamm. Ömurlegt. 0 stjörnur. Ég treysti Gauknum aldrei aftur.
fimmtudagur, janúar 12, 2006
Hvort er mikilvægara, flaskan eða fjölskyldan?
Það kemur í ljós á næstu dögum og sjitt hvað ég kvíði fyrir svarinu. Ég held nefnilega að ég viti það. Fólk er svo fyrirsjáanlegt.
miðvikudagur, janúar 11, 2006
...og hvað? Á ég bara að vera þægur strákur og lesa góða bók?
|
|
|